Niðurföll í sturtur

Hjá Tengi fást niðurföll í sturtur í miklu úrvali. Við hönnun á sturtu er mikilvægt að hafa í huga hverskonar niðurfall á að velja því valmöguleikarnir eru margir.

Algengustu niðurföllin eru nett niðurföll sem eru svipuð að stærð og niðurfallsrör og eru ýmist ferhyrnd eða hringlaga með rist sem mögulegt er að fá úr plasti eða ryðfríu stáli. 

Rennuniðurföll í sturtur

Aflöng niðurföll eða rennuniðurföll njóta mikilla vinsælda enda gefa þau sturtunni snyrtilegt og fallegt yfirbragð. Gólfið er gjarnan látið halla í eina átt í enda sturtunar þar sem rennan liggur þvert eftir breiddinni ýmist með rist úr ryðfríu stáli eða flísalögðu loki sem gefur einstaklega fallegt útlit sem fellur gjarnan vel inn í heildarmyndina.

Hornniðurföll í sturtur

Einn af mörgum möguleikum er að setja niðurfallið út í horn. Þetta er ein útfærsla á gólfrennum og gólfið þá látið halla út í eitt hornið og lokið ýmist flísalagt í stíl við gólfið eða valin rist úr ryðfríu stáli. Þetta er útfærsla sem getur komið mjög skemmtilega út.

Hugmyndir fyrir útfærslur á niðurföllum í sturtur