Starfsmenn Tengis hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu þetta árið til styrktar DM félaginu, en félagið er hagsmunafélag sjúklinga með DM sjúkdóminn (Myotonic dystrophy) og aðstandendur þeirra. Ástæðan fyrir því að við hlaupum til styrktar DM félaginu er að þessi sjúkdómur stendur okkur nærri. Það eru ekki margir sem vita um tilvist þessa fjölskyldusjúkdóms og við viljum leggja okkar af mörkum til að vekja athygli á sjúkdómnum og um leið hjálpa félaginu að vinna að þeim markmiðum sem það hefur sett sér.

Með fyrirfram þökk og von um stuðning.
Starfsfólk Tengis